Atlantsolía setur niður olíutanka

Jim Smart

Atlantsolía setur niður olíutanka

Kaupa Í körfu

UNNIÐ er af fullum krafti við undirbúning nýrrar bensínstöðvar Atlantsolíu sem ráðgert er að opna við Bústaðaveg í Reykjavík í febrúar á næsta ári. Í gær var tveimur 50 þúsund lítra eldsneytistönkum komið fyrir á lóð stöðvarinnar og á næstu vikum verður unnið að frekari frágangi. Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir stöðina vera sjálfsafgreiðslustöð fyrir kort.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar