Konráðshús Ingólfsstræti 1

Konráðshús Ingólfsstræti 1

Kaupa Í körfu

Það er óvenjumikið af estrógeni í Ingólfsstræti 1a í Reykjavík. Í þessu húsi, sem nýlega fékk nafnið Konráðshús, starfa 12 ungar konur, sem nær allar eru í sjálfstæðum rekstri. Starfsemin spannar frá viðmótsprófunum að grafískri hönnun, myndskreytingum og framleiðslu og skipulagningu atburða af ýmsu tagi. Nafngiftir þessara kvennafyrirtækja eru fjölbreyttar eftir því: Hunang, Myndlýsing, Sjá, Forstofan, Forever Entertainment og Hzeta auk nafna kvennanna sjálfra sem margar hverjar starfa fyrst og fremst undir eigin heiti. MYNDATEXTI: 15:10 Í tilefni heimsóknar blaðamanns og ljósmyndara var skipt á vatni hjá gæludýri hússins, kúluskít úr Mývatni, sem lifir góðu lífi í krukku við skrifborð Kristínar Rögnu. Kúluskítinn fékk Kristín sem innflutningsgjöf þegar hún stofnaði fyrstu stofuna sína, fyrir 10 árum en svo skemmtilega vill til að það var einmitt í þessu sama húsi og hún er með starfsemi sína í dag. Allan þennan tíma hefur kúluskíturinn verið nafnlaus en þennan dag kemur Þrúður með hugmynd að nafni sem er ekki hægt annað en að samþykkja: Konráð kúluskítur skal það vera!

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar