Konráðshús Ingólfsstræti 1

Konráðshús Ingólfsstræti 1

Kaupa Í körfu

Það er óvenjumikið af estrógeni í Ingólfsstræti 1a í Reykjavík. Í þessu húsi, sem nýlega fékk nafnið Konráðshús, starfa 12 ungar konur, sem nær allar eru í sjálfstæðum rekstri. Starfsemin spannar frá viðmótsprófunum að grafískri hönnun, myndskreytingum og framleiðslu og skipulagningu atburða af ýmsu tagi. Nafngiftir þessara kvennafyrirtækja eru fjölbreyttar eftir því: Hunang, Myndlýsing, Sjá, Forstofan, Forever Entertainment og Hzeta auk nafna kvennanna sjálfra sem margar hverjar starfa fyrst og fremst undir eigin heiti. MYNDATEXTI: 14:45 Dóra á kafi í skipulagningu kynningarherferðar fyrir Símann og Skjá 1 þar sem ferðast verður á milli bæjarfélaga út um allt land. Það getur verið ágætt að hafa gott gólfpláss þegar þörf er á að breiða svolítið úr sér.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar