Konráðshús Ingólfsstræti 1

Konráðshús Ingólfsstræti 1

Kaupa Í körfu

Það er óvenjumikið af estrógeni í Ingólfsstræti 1a í Reykjavík. Í þessu húsi, sem nýlega fékk nafnið Konráðshús, starfa 12 ungar konur, sem nær allar eru í sjálfstæðum rekstri. Starfsemin spannar frá viðmótsprófunum að grafískri hönnun, myndskreytingum og framleiðslu og skipulagningu atburða af ýmsu tagi. Nafngiftir þessara kvennafyrirtækja eru fjölbreyttar eftir því: Hunang, Myndlýsing, Sjá, Forstofan, Forever Entertainment og Hzeta auk nafna kvennanna sjálfra sem margar hverjar starfa fyrst og fremst undir eigin heiti. MYNDATEXTI: 13:33 Iðnaðarmaður með glænýtt skilti til að festa á útidyrahurðina bankar upp á. "Við erum með öll ráðuneytin hérna í kring um okkur og vorum að hugsa um að kalla húsið Kvennaráðuneytið eða Konuráðið eða eitthvað slíkt. Svo komumst við að því að maðurinn sem byggði þetta hús hét Konráð og þá fannst okkur tilvalið að nefna það Konráðshús."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar