Konráðshús Ingólfsstræti 1

Konráðshús Ingólfsstræti 1

Kaupa Í körfu

Það er óvenjumikið af estrógeni í Ingólfsstræti 1a í Reykjavík. Í þessu húsi, sem nýlega fékk nafnið Konráðshús, starfa 12 ungar konur, sem nær allar eru í sjálfstæðum rekstri. Starfsemin spannar frá viðmótsprófunum að grafískri hönnun, myndskreytingum og framleiðslu og skipulagningu atburða af ýmsu tagi. Nafngiftir þessara kvennafyrirtækja eru fjölbreyttar eftir því: Hunang, Myndlýsing, Sjá, Forstofan, Forever Entertainment og Hzeta auk nafna kvennanna sjálfra sem margar hverjar starfa fyrst og fremst undir eigin heiti. MYNDATEXTI: 16:54 Komið að vikulokum og búið að draga fram sprittkertin og hvítvínsglösin. Undir lágstemmdum djassi og hressilegri "sjúmmbabbatónlist" skála vinkonurnar fyrir vel heppnaðri vinnuviku áður en haldið er heim.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar