Dúkka

Sverrir Vilhelmsson

Dúkka

Kaupa Í körfu

ÞESSI dúkka er tilvalin fyrir hvern þann sem stundar kynbundið ofbeldi," segir Hólmfríður Anna Baldursdóttir, félagi í Bríeti, félagi ungra femínista, um dúkku í fullri stærð sem félagið kynnti í versluninni Iðu í Reykjavík í gær. "Við erum að markaðssetja þessa dúkku og vonumst til þess að hún muni í framtíðinni leysa þær konur af hólmi sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi." Með dúkkunni fylgja hlutir á borð við eldhúshnífa, sýru, rakvélablöð, boxhanska og skyndihjálparkassa með farða "til að fela marbletti og skrámu", segir í tilkynningu frá félaginu Bríeti. MYNDATEXTI: Tilvalin jólagjöf fyrir heimilisofbeldismenn, segja félagar í Bríeti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar