Perlan leikhópur

Sverrir Vilhelmsson

Perlan leikhópur

Kaupa Í körfu

Leikhópurinn Perlan verður með jólaskemmtun á Litla sviði Borgarleikhússins í dag klukkan tvö, en þar er á ferðinni sýningin Jóla-Perlur. Þar verða sýndir Jólasveinarnir eftir Jóhannes úr Kötlum við tónlist og söng Guðna Franzsonar, Krummasaga eftir Jóhannes úr Kötlum við tónlist Mána Svavarssonar og jólaguðspjallið "Sjá ég boða yður mikinn fögnuð." Þau Hreinn Hafliðason og Hildur Davíðsdóttir leika bæði með Perlunni, en Sigríður Eyþórsdóttir leikstýrir hópnum af mikilli röggsemi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar