Hendrikka Waage

Hendrikka Waage

Kaupa Í körfu

Hendrikka Waage opinberaði fyrst skartgripalínuna Waage Jewellery í nóvember á síðasta ári. Við opnunina, sem haldin var í íslenska sendiráðinu í Bretlandi, fengu skartgripirnir verðskuldaða athygli m.a. í bresku fjölmiðlunum London Times, Daily Mail og Hello. Nú rúmlega ári síðar stendur Hendrikka Waage á mikilvægum tímamótum þar sem skartgripalínan hennar fer ört stækkandi í kjölfar nýgerðs samning við aðra stærstu skargripaverslunarkeðju Bretlands; Goldsmith. Frá og með 6. desember eru skartgripirnir fáanlegir í þremur verslunum Goldsmith í Bretlandi, í Debenhams á Meadowhall og í tveimur D'argent-verslunum í London. Skartgripirnir verða eftir sem áður fáanlegir hér á landi í Leonard í Kringlunni og í Leifsstöð. Hendrikka hefur einnig hannað skartgripi fyrir Icelandair sem fást í Saga Boutique.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar