Líknardeild LHS - MND-félagið

Jim Smart

Líknardeild LHS - MND-félagið

Kaupa Í körfu

FÉLAGAR úr MND-félaginu hafa afhent forsvarsmönnum líknardeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss í Kópavogi sérhannaða dýnu og dýnubúnað sem veldur ekki legusárum. Að sögn Guðjóns Sigurðssonar, félagsmanns í MND-félaginu, var dýnan afhent í minningu tónlistarmannsins og fyrrum formanns félagsins, Rafns Ragnars Jónssonar, eða Rabba, sem hefði orðið fimmtugur sl. miðvikudag, en hann lést á þessu ári eftir langvinn veikindi. MYNDATEXTI: Valgerður Sigurðardóttir, yfirlæknir líknardeildar LSH, Friðgerður Guðmundsdóttir, starfsmaður MND-félagsins og ekkja Rabba, Guðrún Friðjónsdóttir læknir, Guðjón Sigurðsson og Hallfríður Reynisdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar