Styrkurinn frá SPRON

Þorkell Þorkelsson

Styrkurinn frá SPRON

Kaupa Í körfu

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hefur afhent Hjálparstarfi kirkjunnar 1,1 milljón króna til stuðnings einstæðingum. Að sögn Vilborgar Oddsdóttur, félagsráðgjafa og umsjónarmanns innanlandsaðstoðar Hjálparstarfsins, eru einstæðingar mjög stór hluti þess hóps sem sækir aðstoð á hverju ári. Um 40% allra sem sækja aðstoðina eru karlar og flestir þeirra eru einstæðingar. Vilborg segir að um 500 umsóknir séu frá einstæðingum ár hvert, þar af eru 400 karlar. MYNDATEXTI: Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri afhenti Vilborgu Oddsdóttur félagsráðgjafa og Jónasi Þórissyni framkvæmdastjóra styrkinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar