Blásarakvintett Reykjavíkur

Sverrir Vilhelmsson

Blásarakvintett Reykjavíkur

Kaupa Í körfu

Árlegir jólatónleikar Blásarakvintetts Reykjavíkur og félaga verða haldnir í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20, undir heitinu "Kvöldlokkur á jólaföstu." Að venju verða leiknar hljómfagrar serenöður eða kvöldlokkur, að þessu sinni eftir Gounod, Mozart og Krommer. Blásarakvintett Reykjavíkur skipa þeir Bernharður Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Einar Jóhannesson, Jósef Ognibene og Hafsteinn Guðmundsson, en með þeim leika í kvöld Peter Tompkins, Sigurður I. Snorrason, Þorkell Jóelsson, Brjánn Ingason og Rúnar Vilbergsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar