Gísli Sveinbjörnsson

Alfons Finnsson

Gísli Sveinbjörnsson

Kaupa Í körfu

Gísli Sveinbjörnsson er einn þeirra sem stokka línu í landi. Það gerir hann fyrir línubátinn Minnu BA, sem er gerður út frá Siglufirði. Minna er með beitningartrekt og því er línan bara stokkuð í landi, ekki beitt. Skipverjar á Minnu skera beituna áður er farið er í róður og henni svo komið fyrir í trektinni þegar línan er lögð. Línan dregst þá í gegnum beituna í trektinni þannig að hún festist á krókana jafnóðum og þeir fara í sjóinn. Ekki fæst línuívilnun vegna báta sem nota trektina þrátt fyrir að uppstokkunin skapi vinnu í landi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar