Jólastemning

Kristján Kristjánsson

Jólastemning

Kaupa Í körfu

Akureyri | Nemar við Myndlistarskólann á Akureyri hafa lífgað upp á aðventuna, þeir eru á ferðinni og bjóða bæjarbúum upp á skemmtan af ýmsu tagi. Uppáklætt fólk hefur tekið lagið, farið í skrúðgöngur, efnt til útitaflmóts þar sem taflmenn voru í gervi jólasveina og eins hafa nemar lagt sitt af mörkum til að skreyta miðbæinn, m.a. mátti á dögunum sjá fagurlega skreytta stöðumæla út um allan bæ. Íbúarnir sem nú eru í óða önn að versla fyrir jólin hafa gefið sér tíma til að fylgjast með hinum hugmyndaríku myndlistarnemum og jafnvel tekið þátt í uppákomunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar