David Rose

Jim Smart

David Rose

Kaupa Í körfu

Nú bendir allt til að á endanum verði þeim öllum sleppt lausum," hefur David Rose eftir Charlie Swift, einum lögmanna fanganna í Guantánamo-fangabúðunum illræmdu. Það eitt að flestir fanganna, sem fluttir hafa verið frá Pakistan, Afganistan og fleiri löndum til þessara búða, kunni að reynast saklausir er þungur áfellisdómur yfir aðferðum Bandaríkjanna við að handsama meinta hryðjuverkamenn og fá þá til að tala. Guantánamo-búðirnar og Abu Ghraib-fangelsið í Írak hafa orðið til þess að minna á hve auðvelt það er fyrir þá sem hafa hæst um háleit siðferðismarkmið að hætta að beita slíkum mælikvörðum á sjálfa sig. MYNDATEXTI: David Rose

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar