Randver ÞorlákssonSpaugstofan

Randver ÞorlákssonSpaugstofan

Kaupa Í körfu

Erfiðasta árið í lífi Randvers Þorlákssonar var 2000 þegar eiginkona hans, Guðrún Þórðardóttir, greindist með krabbamein. "Það ár tók verulega á. Ég reyndi auðvitað að vera henni stoð og stytta, gerði hvað ég gat til að vera jákvæður og hjálpa henni að byggja sig upp. Hún var ótrúlega dugleg, breytti um lífsstíl og hefur sem betur fer sigrast á sjúkdómnum. Og ég hugsa að jákvæðni hennar hafi þegar allt kemur til alls haft jákvæð áhrif á mig. Um svipað leyti missti ég pabba minn og áföll urðu einnig í fjölskyldu Guðrúnar. Það er stundum eins og erfiðleikarnir komi í böggli og svo taki aftur við góðir tímar."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar