Samkaup - Glerárkirkja - Mæðrastyrksnefnd

Kristján Kristjánsson

Samkaup - Glerárkirkja - Mæðrastyrksnefnd

Kaupa Í körfu

Samkaup færðu á dögunum Glerárkirkju hálfa milljón króna en fénu verður varið til að greiða steinda glugga í kirkjunni. Við sama tækifæri tóku fulltrúar Mæðrastyrksnefndar á móti einni milljón króna í gjafabréfum fyrir skjólstæðinga nefndarinnar, en féð mun að sögn koma sér vel nú þegar hvað mestar annir eru hjá nefndarkonum fyrir jólahátíðina. Á myndinni eru fulltrúar Glerárkirkju, Samkaupa og Mæðrastyrksnefndar við afhendinguna, frá vinstri Hermann Jónsson, sr. Gunnlaugur Garðarsson, Skúli Skúlason, Sigríður Jóhannsdóttir, Ellert Gunnsteinsson, Margrét Guðmundsdóttir, Sigmundur Sigurðsson, Stella Jónsdóttir, Gísli Gíslason og Jóna Berta Jónsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar