Frístundaheimilis ÍTR í Melaskóla - Selið

Jim Smart

Frístundaheimilis ÍTR í Melaskóla - Selið

Kaupa Í körfu

Börn og starfsfólk frístundaheimilis ÍTR í Melaskóla, Selinu, buðu borgarstjóra í heimsókn í gær. Í Selinu eru alla jafna um 140 börn en á milli 40-50 börn voru þar í gær, enda frí í skólum og margir foreldrar einnig komnir í frí. Að sögn Ástu Friðriksdóttur, starfsmanns í Selinu, hafa börnin átt náðuga daga vikurnar fyrir jól og þau dundað sér við að föndra og skreyta fyrir jólin. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri var leyst út með stærðar jólakorti sem börnin hafa föndrað að undanförnu, þegar hún heimsótti þau í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar