Jólahús í Sandgerði

Reynir Sveinsson

Jólahús í Sandgerði

Kaupa Í körfu

Sandgerðingar virðast vera óvenju skreytingaglaðir fyrir þessi jól og mörg hús hafa vakið athygli fyrir ljósaskreytingar. Íbúar tveggja húsa hafa fengið afhentar viðurkenningar fyrir fallegar jólaskreytingar...Bogabraut 6 er skreytt með hvítum ljósum. Þar búa Haraldur Jóhannesson og Adda Bára Júlíusdóttir. Hlíðargata 44 er með mislitum skreytingum sem eru umvafðar greni. Þar búa Hans Ómar Borgarsson og Guðbjörg Sigríður Óskarsdóttir. MYNDATEXTI: Verðlaunahafar Skreytingameistararnir saman komnir, f.v. Adda Bára Júlíusdóttir, Haraldur Jóhannesson, Berglind Haraldsdóttir, Hans Ómar Borgarsson, Guðbjörg Sigríður Óskarsdóttir og tvíburadæturnar Lovísa Rut og Elísabet Ýr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar