Tangósveit lýðveldisins

Tangósveit lýðveldisins

Kaupa Í körfu

FIMMTA og síðasta tangókvöld ársins verður haldið í Iðnó í kvöld kl. 20. Nú er um að gera fyrir tangóþyrsta dansara að lyfta sér upp frá jólakonfektinu og fá leiðsögn í þessum seiðandi dansi og njóta um leið tónlistar frábærra tónlistarmanna. Fyrsta klukkutímann er boðið upp á leiðsögn en kl. 21 stígur Tangósveit lýðveldisins á stokk og leikur til kl. 23. Sveitin er skipuð þeim Hjörleifi Valssyni fiðluleikara, Tatu Kantomaa bandoneonleikara, Ástvaldi Traustasyni harmónikuleikara, Vigni Þór Stefánssyni píanóleikara og Gunnlaugi T. Stefánssyni kontrabassaleikara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar