KEA-íþróttafólk fær styrk

Kristján Kristjánsson

KEA-íþróttafólk fær styrk

Kaupa Í körfu

TÍU ungir og efnilegir íþróttamenn hafa fengið styrk frá Menningar- og viðurkenningarsjóði Kaupfélags Eyfirðinga, KEA, að upphæð 250 þúsund hver. Styrkurinn sem um ræðir tekur til ungra afreksmanna á sviði mennta, lista, íþrótta eða viðurkenninga fyrir sérstök afrek, t.d. á sviði björgunarmála. Þeir sem hlutu styrk að þessu sinni voru Kristinn Ingi Valsson, skíðamaður á Dalvík, Árni Þór Sigtryggsson, handknattleiksmaður í Þór á Akureyri, Magnús Stefánsson, handknattleiksmaður í KA, Akureyri, Rakel Rós Snæbjörnsdóttir, frjálsíþróttakona úr HSÞ, Salome Tómasdóttir, skíðakona úr Skíðafélagi Akureyrar, Bjarni Konráð Árnason og Ólafur Halldór Torfason, körfuknattleiksmenn í Þór á Akureyri, Þorsteinn Ingvarsson, frjálsíþróttamaður úr HSÞ, Björgvin Björgvinsson, skíðamaður úr Skíðafélagi Dalvíkur, og Arnór Þór Gunnarsson, handknattleiksmaður úr Þór á Akureyri. MYNDATEXTI: Íþróttafólk Á myndinni eru einstaklingarnir og eða fulltrúar þeirra sem hlutu styrki, ásamt fulltrúum KEA.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar