Nylon stúlknabandið

Nylon stúlknabandið

Kaupa Í körfu

Körfuknattleiksdeild ÍR efnir til stórtónleika í dag kl. 18 í Íþróttahúsi Seljaskóla, en þar munu tveir af vinsælustu listamönnum ungu kynslóðarinnar, þau Birgitta Haukdal og Jón Sigurðsson, leika fyrir gesti auk þess sem stúlkurnar í söngsveitinni Nylon munu troða upp, en þær njóta einnig mikilla vinsælda um þessar mundir. "Tónleikarnir eru haldnir til að safna peningum til að reka deildina. Það er mikið bras að reka deild innan félags, þó það sé líka mjög skemmtilegt, en þetta er liður í því að safna fé til rekstrarins," segir Gunnar Sverrisson stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild ÍR.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar