Tæland - Flóðbylgja

Sverrir Vilhelmsson

Tæland - Flóðbylgja

Kaupa Í körfu

Ferð þotu Loftleiða Icelandic til eyjunnar Phuket í Taílandi gekk mjög vel, að sögn Steinars Steinarssonar flugstjóra. Flugvélin var send til Taílands að beiðni sænskra stjórnvalda og mun hún flytja um 200 sænska ferðamenn til Stokkhólms í dag. Íslenskum stjórnvöldum var boðið að nýta ferðina austur og lagði vélin af stað í fyrrakvöld með teppi og um 10 tonn af vatni sem Ölgerðin Egill Skallagrímsson gaf. MYNDATEXTI: Fjöldi flugvéla, m.a. frá Loftleiðum, flytur Norðurlandabúa heim. Þessi maður beið eftir flugi fyrir Svía, Norðmenn og Dani til Málmeyjar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar