Víða kveikt í brennum á nýársdag

Jim Smart

Víða kveikt í brennum á nýársdag

Kaupa Í körfu

ENGAR brennur fóru fram á höfuðborgarsvæðinu á gamlárskvöld vegna slæmrar veðurspár. Ofsaveðri var spáð á svæðinu og að sögn lögreglu var ákveðið að eitt yrði yfir alla að ganga. Leyfi var hins vegar gefið fyrir því að kveikja í brennunum á nýársdag. Fjölmenni var við brennuna á Ægisíðu og voru viðstaddir ánægðir með myndarlegan bálköstinn sem lýsti upp himininn á nýju ári. MYNDATEXTI:Þessar ungu stúlkur fylgdust hugfangnar með brennunni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar