Snjókerlingar

Kristján Kristjánsson

Snjókerlingar

Kaupa Í körfu

Ekkert lát virðist vera á snjókomu norðan heiða, en snjó kyngdi niður í allan gærmorgun og fram yfir hádegi. Nokkur viðbrigði fyrir íbúa bæjarins, sem ekki hafa séð svo mikinn snjó í áratug. Sigurborg Sveinsdóttir var á leið heim úr leikskólanum með dætur sínar, Kristínu Halldóru, sem bráðum verður 5 ára og tvíburasysturnar Sigríði Rós og Jónínu Lilju sem allar eru á Holtakoti. Færðin er ekki upp á það besta innanbæjar vegna fannfergisins, en stúlkurnar ferðuðust á milli skóla og heimilist á ágætum snjóþotum og virtist fara vel um þær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar