Sjálfstæðismenn á Hótel Sögu

Sjálfstæðismenn á Hótel Sögu

Kaupa Í körfu

Magnús L. Sveinsson var kjörinn formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík "LÁTUM fólk í landinu vita og finna fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á, að jafnframt því að við stuðlum að sjálfstæði einstaklingsins og hver og einn verði sjálfum sér nógur eftir því sem aðstæður leyfa, þá viljum við tryggja að samhjálpin sé ætíð til staðar fyrir þá sem stuðnings þurfa við vegna óviðráðanlegra aðstæðna, sem fylgir öllum þjóðfélögum. Góðir fundarmenn, hugum að samhjálpinni í víðustu merkingu þess orðs," sagði Magnús L. Sveinsson nýkjörinn formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, eftir aðalfund ráðsins á laugardaginn. MYNDATEXTI: Magnús L. Sveinsson var í mörg ár borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar