Japönsk fjölskylduhátíð í Háskóla Íslands

Japönsk fjölskylduhátíð í Háskóla Íslands

Kaupa Í körfu

EFNT var til japanskrar fjölskylduhátíðar á vegum sendiráðs Japans og japönskukennslunnar innan heimspekideildar Háskóla Íslands sl. laugardag. Fjölbreytt dagskrá var í boði þar sem Japan var kynnt frá ýmsum hliðum. Meðal þess sem var kynnt var japanskur matur, tesiðir, pappírslist (origami) og bardagaíþróttir. Fjöldi manns sótti hátíðina sem var opin öllum. Þessir gestir voru að fá nafn sitt skrautritað með japönsku kanji-letri þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar