Steinn Sigurðsson - Visio Vac-búnaður á ryksugur

Jim Smart

Steinn Sigurðsson - Visio Vac-búnaður á ryksugur

Kaupa Í körfu

Íslensk uppfinning, Visio Vac-búnaður á ryksugu-barka, kemur í veg fyrir að verðmætir hlutir hverfi í ryksugupokann. Hugmyndin á bak við þennan búnað er sú að fólk geti ryksugað áhyggjulaust, til dæmis á bak við sófa eða á dimmum stöðum, án þess að þurfa að naga sig í handarbökin yfir því hvort þar leynist einhver verðmætur hlutur, sem myndi þá lenda í ryksugupokunum. Það fylgir því óþarfa ergelsi, sem þessi búnaður getur komið í veg fyrir," segir Steinn Sigurðsson hugvitsmaður, sem að undanförnu hefur kynnt Visio Vac-búnaðinn, sem hann hannaði og hóf framleiðslu á árið 2002. MYNDATEXTI: Visio Vac-búnaðurinn í umbúðunum sem Steinn hannaði til að auðvelda fólki að þekkja búnaðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar