Magnús Einarsson og Frey Eyjólfsson

Jim Smart

Magnús Einarsson og Frey Eyjólfsson

Kaupa Í körfu

Treginn verður í algleymingi á Grand rokki í kvöld kl. 22, þegar hljómsveitin Tenderfoot og dúettinn Sviðin jörð stíga á svið ásamt trúbadornum Láru. Tenderfoot gáfu nýlega út plötuna Without Gravity, en sveitin leikur órafmagnað og lágstemmt kántrí. Dúettinn Sviðin jörð samanstendur af frændunum Frey Eyjólfssyni og Magnúsi Einarssyni, sem báðir starfa við dagskrárgerð á Ríkisútvarpinu og leika vandaða tónlist fyrir hlustendur, en Magnús kenndi einmitt Frey á gítar og mandólín á sínum tíma.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar