Suzuki Ignis

Suzuki Ignis

Kaupa Í körfu

Reynsluakstur: Suzuki Ignis 4x4 Guðjón Guðmundsson Suzuki Ignis 4x4 er athyglisverður bíll fyrir borgarbúa jafnt sem landsbyggðarfólk á norðlægum breiddargráðum. Hann er fjölskyldubíll, eins og hver annar lítill fólksbíll, en um leið fjórhjóladrifinn örjepplingur með 17 cm veghæð sem gerir bílinn notadrjúgan þegar Vetur konungur gerir sig gildandi. Vegna smæðarinnar er líklegt að Ignis 4x4 henti síður barnmörgum fjölskyldum en þeim mun betur einstaklingum sem leggja mikið upp úr lágum rekstrarkostnaði með lágri bilanatíðni og lítilli eyðslu, en um leið fjórhjóladrifi og mikilli veghæð. MYNDATEXTI: Ignis 4x4 er lítill en afar knár fjórhjóladrifinn bíll.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar