Ford Freestyle

Ford Freestyle

Kaupa Í körfu

FREESTYLE á ekkert skylt við samnefnda dansgrein en er nýr, sjö manna bíll frá Ford. Nú hefur Brimborg fengið fyrstu bílana af þessari gerð sem fram til þessa hafa eingöngu verið framleiddir og seldir í Bandaríkjunum. Freestyle er gerðarlegur bíll sem virðist vera sannkallaður blendingur af langbak og jepplingi og með miklu innanrými. Hann er fjórhjóladrifinn og boðinn í þremur útfærslum, þ.e. SE, SEL og Limited, og bílarnir sem Brimborg hefur fengið eru einmitt af SE- og Limited-gerð. MYNDATEXTI: Freestyle er yfir fimm metrar á lengd og er með langbakslagi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar