Skautaleikur

Albert Kemp

Skautaleikur

Kaupa Í körfu

Veður hefur verið gott og sólin að byrja að sýna sig í fjallaskörðum í Fáskrúðsfirði, en hún breiðir sig yfir bæinn í dag, verði veður bjart. Mjög mikil svellalög eru um þessar mundir bæði á vegum, á láglendi og túnum. Börn og fullorðnir hafa leikið sér á skautum og þotum á knattspyrnuvellinum á Fáskrúðsfirði í góða veðrinu, en á vellinum er ágætt skautasvell þessa dagana þó eitthvað sé það að bráðna í hlýindunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar