Haukar - ÍR 107:73

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Haukar - ÍR 107:73

Kaupa Í körfu

SÆTI Hauka í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Intersportdeildinni, er sennilega borgið ef liðið heldur áfram að leika eins og það gerði í gærkvöldi þegar það fékk ÍR-inga í heimsókn. Haukarnir mættu grimmir til leiks, náðu strax forystu og juku hana jafnt og þétt þar til yfir lauk og stórsigur í höfn, 107:73. MYNDATEXTI: Sævar Haraldsson, bakvörður Hauka, brýst í gegnum vörn ÍR-inga. Haukar komu á óvart með því að vinna yfirburðasigur á ÍR-ingum og fengu tvö dýrmæt stig í fallbaráttu úrvalsdeildarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar