Halldóra Matthíasdóttir markaðsstjóri - Opin Kerfi

Morgunblaðið/ÞÖK

Halldóra Matthíasdóttir markaðsstjóri - Opin Kerfi

Kaupa Í körfu

HEILSA | Starfsmenn Opinna kerfa hæstánægðir með heilsuviku Nammiskápum var skipt út fyrir ávaxtakörfur og gosdrykkjakælar fylltir hollustu. Frítt var í líkamsrækt og heilsutengdir fyrirlestrar haldnir reglulega. Þetta var meðal þess sem starfsmenn Opinna kerfa ehf. nutu í heilsuvikunni, sem haldin var nýlega með pomp og prakt Starfsmenn Opinna kerfa hafa svo sannarlega verið á iði undanfarna daga því alla síðustu viku stóð yfir heilsuvika í fyrirtækinu með afbragðsgóðum árangri. Stefnt er að því að gera könnun meðal starfsmanna á næstu dögum til að meta og mæla árangur heilsuvikunnar, ánægju eða óánægju svo að fyrirtækið geti sem best komið til móts við óskir starfsmanna hvað varðar heilsueflinguna. MYNDATEXTI: Halldóra Matthíasdóttir, markaðsstjóri Opinna kerfa, með ávaxtakörfuna sem hefur notið mikilla vinsælda í heilsuvikunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar