Öskudagur

Árni Torfason

Öskudagur

Kaupa Í körfu

Býsna líflegt var um allt land í gær, þar sem börnin fögnuðu öskudeginum, óheft af veggjum skólanna. Í miðbænum hlupu börnin milli verslana, stofnana og veitingastaða, flest með þann eina tilgang að öðlast sælgæti og líktu sumir úttaugaðir verslunarmenn ástandinu góðlátlega við umsátur. Þessi krakkatrippi skeiðuðu syngjandi fram hjá listaverkum Errós í Kringlunni og virtu fyrir sér listina á meðan þau jöpluðu á góðgætinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar