Einar Baldvin Árnason
Kaupa Í körfu
ÞÓRSARAR tefla fram mörgum ungum leikmönnum í meistaraflokksliði sínu í handknattleik. Sá yngsti kom fram í sviðsljósið í óvæntum sigurleik Þórs gegn Val á fimmtudagskvöldið. Það er hinn 15 ára Aron Einar Gunnarsson, sem er enn leikmaður í 4. flokki. Aron verður 16 ára 22. apríl. Þess má geta að bróðir hans, Arnór Þór Gunnarsson, 18 ára, leikur einnig með Þórsliðinu og skoraði hann tvö mörk gegn Val. Pabbi þeirra, Gunnar Malmquist, lék á árum áður með Þórsliðinu. Þess má til gamans geta að Einar Baldvin Árnason er yngsti leikmaðurinn sem hefur leikið í efstu deild karla á Íslandsmóti. Hann var nýorðinn 15 ára þegar hann lék með KR gegn Val í apríl 1990. Einar Baldvin, sem er sonur Árna Indriðasonar, fyrrverandi landsliðsmanns, er fæddur 6. desember 1974. Þegar Einar Baldvin lék sinn fyrsta leik stóð hann sig vel í vörninni og lét landsliðsmennina Valdimar Grímsson og Finn Jóhannsson finna fyrir sér. Hann fékk aðeins að spreyta sig í sókninni - fékk tvö marktækifæri og nýtti annað glæsilega. MYNDATEXTI: Einar Baldvin Árnason (t.h.) með Finn Jóhannsson í strangri gæslu í sínum fyrsta leik með KR.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir