Alþingishúsið
Kaupa Í körfu
Að reisa borg er verkefni sem byggist á samræðu og þessi samræða þarf að fara fram eftir ströngustu kröfum: Aðeins einn talar í einu og hinir hlusta og svara síðan af fullri virðingu fyrir orðum fyrri mælenda, með kurteisi og íhygli; frammíköll, hvers konar orðagjálfur og almennt blaður út fyrir efnið ættu ekki að heyrast enda mjög mikilvægt að samræðan sé markviss þó að þátttakendur kunni að greina á um efnisatriði. Án ágreinings væri raunar lítið um að tala auk þess sem krafturinn, dínamíkin myndi hverfa, og markmið samræðunnar gufaði upp en það er hin endalausa leit að fagurfræðilegri niðurstöðu, samhengi sem í senn gleður augað, lyftir sálinni og fullnægir þörfum okkar - leit að fallegri borg MYNDATEXTI: Viðbygging við Alþingishúsið "Niðurstaðan varð þessi ótrúlega fyrirferðarmikli, tveggja hæða, grænleiti glerrani sem stendur á milli húsanna og gerir, þrátt fyrir gagnsætt efnið, fátt til þess að láta lítið á sér bera."
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir