Undir Eyjafjöllum

Halldór Gunnarsson

Undir Eyjafjöllum

Kaupa Í körfu

UMFERÐ um Suðurlandsveg undir Eyjafjöllum varð fyrir nokkrum töfum í gær vegna viðgerðar við vesturenda Kaldaklifsárbrúar. Tilkynnt hafði verið um lokun vegarins fram eftir degi, en að sögn Gylfa Júlíussonar, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar í Vík í Mýrdal, tókst að hleypa umferð yfir brúna með nokkrum hléum. Sigið hafði undan veginum þar sem hann mætir brúnni og myndaðist gat í veginn. Taldi Gylfi það vera afleiðingar vatnavaxta. Vegagerðarmenn luku viðgerðinni í gærkvöldi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar