Níní

Níní

Kaupa Í körfu

Þegar Fe Galicia Isorena fluttist til Íslands frá Filippseyjum árið 1998 þekkti hún lítið til landsins og þeirrar undarlegu tungu sem töluð er á þessari litlu eyju í norðri. Sjö árum síðar er Níní, eins og hún er jafnan kölluð, starfandi kennari við Fellaskóla, þar sem hennar aðalkennslugrein er íslenska sem annað tungumál. Hún hefur ferðast vítt og breitt um landið og er stórhrifin af hangikjöti, kjötsúpu og soðinni ýsu. Þá staðreynd kann unnusti hennar og sambýlismaður, Þórður Ingi Guðjónsson íslenskufræðingur, sérstaklega vel að meta MYNDATEXTI 08:16 Vinnudagur Níníar hefst á því að hún sækir nemendurna inn í bekkjardeildirnar. "Í skólanum eru um 480 börn og af þeim eru um 55 af erlendum uppruna. Alls kenni ég 36 krökkum sem eru allt frá því að vera í fyrsta bekk og upp í tíunda og flestir þeirra þurfa talsverðan stuðning, sérstaklega í íslensku."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar