Níní

Níní

Kaupa Í körfu

Þegar Fe Galicia Isorena fluttist til Íslands frá Filippseyjum árið 1998 þekkti hún lítið til landsins og þeirrar undarlegu tungu sem töluð er á þessari litlu eyju í norðri. Sjö árum síðar er Níní, eins og hún er jafnan kölluð, starfandi kennari við Fellaskóla, þar sem hennar aðalkennslugrein er íslenska sem annað tungumál. Hún hefur ferðast vítt og breitt um landið og er stórhrifin af hangikjöti, kjötsúpu og soðinni ýsu. Þá staðreynd kann unnusti hennar og sambýlismaður, Þórður Ingi Guðjónsson íslenskufræðingur, sérstaklega vel að meta MYNDATEXTI: 17:43 Eftir vinnu lítur Níní við hjá systur sinni, Annie G. Isorena, sem býr í næsta stigagangi ásamt manni sínum Guðjóni Atlasyni og dætrum þeirra Söru Ísey, sem er sex ára, og Hönnu Mae, sem er tveggja. Það fer ekkert á milli mála hver er uppáhalds frænka þeirra stuttu enda eru þær tregar að sleppa af Níní hendinni þegar tími er kominn til að kveðja.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar