Naustahverfi á Akureyri

Kristján Kristjánsson

Naustahverfi á Akureyri

Kaupa Í körfu

Byggingarrétti undir 135 íbúðir í Naustahverfi úthlutað UMHVERFISRÁÐ úthlutaði á fundi sínum í gær byggingarrétti á alls fimm reitum í Naustahverfi II, undir samtals 135 íbúðir. Eftir er að úthluta byggingarrétti á tveimur reitum í þessum áfanga hverfisins, undir samtals 105 íbúðir og verður það gert síðar. MYNDATEXTI: Fasteignir Íbúðarhúsnæði sprettur upp eins og gorkúlur í Naustahverfi. Veðurguðirnir eru hliðhollir húsbyggjendum þessa dagana og þessir ágætu menn, sem voru að vinna við raðhús við Hamratún, gátu verið léttklæddir uppi á þaki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar