Alexander Kárason

Alexander Kárason

Kaupa Í körfu

Alexander "Lexi" Kárason er þekktur í hópi vélsleðamanna. Lexi, sem er að norðan, er nú fluttur á mölina og ætlar sér ásamt öðrum góðum mönnum að rífa upp vélsleðasportið hér sunnan heiða. Lexi er eigandi heildsölunnar Papco og vinnur við fyrirtækið en fjölskyldan er ennþá norðan heiða. Lexi er kominn í stjórn LÍV, Landssambands íslenskra vélsleðamanna, og eitt af hans fyrstu verkefnum er að skipuleggja Reykjavíkurmeistaramótið sem haldið verður í Skálafelli um helgina. MYNDATEXTI: Lexi ætlar að rífa upp vésleðasportið sunnan heiða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar