Kópavogsdeild RKÍ

Þorkell Þorkelsson

Kópavogsdeild RKÍ

Kaupa Í körfu

SJÁLFBOÐALIÐI | Starfar með ungum innflytjendum Þegar Sigríður Pálsdóttir sá sjötug fram á starfslok bjó hún sér til stundaskrá og er nú sjálfboðaliði í starfi með ungum innflytjendum. Hún sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að vilji til sjálfshjálpar væri mikilvægur því ef menn reyndu ekki að hjálpa sér sjálfir væri varla von að aðrir gerðu það. Það er alltaf líf og fjör inni í sal Kópavogsdeildar Rauða krossins við Hamraborg á miðjum miðvikudögum. Rúta er þá nýkomin úr Hjallaskóla með unga nýbúa, sem eru að reyna að aðlagast íslensku samfélagi. Að þessu sinni voru þeir tólf talsins frá Albaníu, Póllandi, Taílandi, Víetnam, Kosovo og Portúgal. Á móti þeim tekur "ömmufaðmur" Sigríðar Pálsdóttur, sem segist vera módel 25 og verði því líklega áttræð síðar á árinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar