Afhending Nýsköpunarverðlauna

Jim Smart

Afhending Nýsköpunarverðlauna

Kaupa Í körfu

CCP fær nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs árið 2005 FYRIRTÆKIÐ CCP hlaut nýsköpunarverðlaun Rannís og Útflutningsráðs árið 2005 en það hefur náð afar góðum árangri með fjölþátttökuleikinn EVE-Online sem kom út í maí í fyrra og eru virkir áskrifendur að leiknum á Netinu nú orðnir liðlega 55 þúsund talsins um allan heim. Viðskiptahugmyndin gengur út á það að selja spilurum leikinn og rukka eftir það mánaðarlegt áskriftargjald fyrir að viðhalda og þróa áfram þennan leikjaheim. EVE-online mun vera áttundi stærsti leikurinn á Vesturlöndum á eftir leikjum frá Electronic Arts, Sony, Microsoft og Blizzard. MYNDATEXTI: Nýsköpunarverðlaun 2005 Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra afhenti Hilmari Veigari Péturssyni, framkvæmdastjóra CCP, verðlaunin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar