Íslandsmót í hópfimleikum

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Íslandsmót í hópfimleikum

Kaupa Í körfu

STJARNAN, eldri flokkur, varði í gærkvöldi titil sinn í hópfimleikum þegar Bikarmótið í fimleikum fór fram á Seltjarnarnesi. "Við áttum svo sem von á þessum sigri enda æfum við mjög mikið og þetta er allt að koma," sagði Sigurlaug J. Ólafsdóttir, fyrirliði Stjörnunnar. MYNDATEXTI: Sigri fagnað Stjarnan var sigurvegari á bikarmótinu í hópfimleikum. Í efri röð frá vinstri er Hrefna Þ. Hákonardóttir, Andrea Dan Árnadóttir, Auður Ólafsdóttir, Íris Mist Magnúsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Hrefna Halldórsdóttir, Þórunn Arnardóttir og Kim Fischer þjálfari. Í neðri röð Sigurbjörg J. Ólafsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, María K. Árnadóttir, Íris Svavarsdóttir, Ása Inga Þorsteinsdóttir og Brynhildur H. Eggertsdóttir en fremst í flokki fyrir framan hana situr svo dóttir hennar, Hildur Sóley, 7 mánaða, og furðar sig á sigurlátunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar