Hólaberg

Brynjar Gauti

Hólaberg

Kaupa Í körfu

Opið hús var hjá sambandsaðilum Samtaka um vinnu- og verkþjálfun í gær, í tilefni af opnun vefsíðu þeirra á slóðinni www.hlutverk.is . Blaðamaður og ljósmyndari litu við á þremur stöðum. Á Vinnustofunni Hólabergi í Gerðubergi voru starfsmenn að pakka Andrésblöðum. Hólaberg er vinnustaður fjórtán einhverfra einstaklinga og vinna þeir ásamt sex leiðbeinendum að ýmsum verkefnum. Vinnustofan heyrir undir Iðjuberg, ásamt Dagvist fyrir fatlaða. MYNDATEXTI: Starfsmenn á Hólabergi, sem eru fjórtán talsins, vinna meðal annars við innpökkun á Andrésblöðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar