Mjúk lending á Reykjavíkurflugvelli

Mjúk lending á Reykjavíkurflugvelli

Kaupa Í körfu

Töluverð umferð einkaflugvéla hefur verið um Reykjavíkurflugvöll þessa dagana enda veður ákjósanlegt, stillt og bjart. Samkvæmt upplýsingum frá flugturninum á Reykjavíkurflugvelli hefur verið þónokkur umferð um völlinn enda allar aðstæður til flugs hinar bestu, kalt og hægur vindur og skyggni gott. TF-Ósk var ein þeirra véla sem voru á lofti og lenti margoft mjúklega en tók sig jafnharðan upp aftur og sveimaði hring í kringum völlinn. TF-Ósk er frönsk vél af Rallí-gerð, smíðuð árið 1973 en keypt til landsins árið 1981.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar