Gísli Einarsson í Borgarnesi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Gísli Einarsson í Borgarnesi

Kaupa Í körfu

Viltu heyra mín dýpstu leyndarmál...?" spyr Gísli Einarsson kankvíslega þegar hann er munstraður í samtal. Honum er tjáð að það fari eftir Kvöldgestastemmningunni sem náist upp - það þykir Gísla vel við hæfi, enda útvarpsmaður sjálfur. Og hann er ánægður með að útsendari Tímaritsins hyggist sækja hann heim í Borgarnes. "Við erum óvön því að höfuðborgin bjóðist til að koma til okkar, yfirleitt þurfum við að koma til höfuðborgarinnar," segir hann og gefur leiðbeiningar: "Ég skal taka á móti þér í útvarpshúsinu í Borgarnesi. Það er gamalt, hvítt hús við hliðina á kirkjunni. Við kjósum að kalla það Næsta-Leiti, úr því Efstaleiti er upptekið." Og á nefndum degi, þegar rennt er í hlað, stendur Gísli í gættinni og veifar. Þetta er rétta húsið, örbylgjuloftnet á þakinu, velkomin í bæinn, kleinur og rjúkandi kaffi á borðum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar