Við Miklatún - Sesselja og Trýna

Við Miklatún - Sesselja og Trýna

Kaupa Í körfu

Klambratún | Kuldakast síðustu viku entist ekki lengur og heitt loft frá suðurhöfum barst yfir landið af miklum krafti á sunnudag, mörgum borgarbúum til mikillar ánægju. Fjölmargir útivistarmöguleikar opnast við þessi veðrabrigði, en þó er ein tegund útivistar sem fólki er skylt að stunda hvernig sem viðrar, en það er að ganga með besta vininum. Það er þó mikil bót í máli þegar veðrið er svona gott og þær vinkonurnar Sesselja og Trýna kunnu svo sannarlega vel að meta blíðviðrið í gær þar sem þær skondruðu eftir Klambratúninu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar