Dansrækt-JSB

Jim Smart

Dansrækt-JSB

Kaupa Í körfu

Þær hafa verið saman í leikfimi í 35 ár og eiga sinn eigin frumsamda leikfimisöng sem þær kyrja við góð tækifæri. Það er svo sannarlega létt yfir konunum sem mæta í leikfimi í Dansrækt-JSB í Lágmúlanum á þriðjudags- og fimmtudagsmorgnum klukkan hálftíu stundvíslega. Afföll eru yfirleitt engin nema konurnar eigi ekki heimangengt og þegar Daglegt líf brá sér í leikfimitíma fyrir skömmu, voru nokkrar konur úr leikfimihópnum fjarverandi, ýmist að sleikja sólina á Kanaríeyjum eða á Flórída, að sögn hinna sem mættu. MYNDATEXTI: Til hægri og svo til vinstri. Hrund Hansdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar