Kjartan Ólafsson

Eyþór Árnason

Kjartan Ólafsson

Kaupa Í körfu

Tónlistarhús | Mikil óánægja tónlistarfólks kemur fram í fjöldaáskorun Við óttumst að það stefni í að hið fyrirhugaða Tónlistarhús verði á endanum ekki tónlistarhús, heldur fjölnota menningarhús, þar sem ráðstefnur og alls kyns menningarlegar uppákomur verði metnar til jafns við tónleikahald atvinnumanna í tónlistarlífinu," segir Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags Íslands og talsmaður breiðs hóps af tónlistarfólki, tónleikahöldurum og tónleikagestum, sem skrifað hafa undir áskorun til forsvarsmanna Tónlistarhússins um að taka til greina óskir þessa hóps um tónleikasal sem sniðinn sé að þörfum þeirra. MYNDATEXTI: "Áskorunin er okkar síðasta hálmstrá til að vekja athygli á sjónarmiðum tónlistarfólksins," segir Kjartan Ólafsson, formaður Tónskáldafélags Íslands og talsmaður undirskriftasöfnunar um kammersal í Tónlistarhúsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar